Fara á efnissvæði
World Map Background Image
TasteTheWild Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni þess að stjórn og aðalfundur Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðanda samþykkti að lýsa yfir „vanþóknun á hendur framkvæmdastjóra og hluta stjórnar Vinnslustöðvarinnar“ vegna starfsloka skipstjórnarmanna á Hugin VE-55.

Framkvæmdastjórinn vill koma eftirfarandi á framfæri að gefnu þessu tilefni:

1.     Skoðun Vinnslustöðvarinnar á upptökum úr öryggismyndavélum leiddi í ljós að öryggisloki (keðjustoppari) akkeris Hugins, sem kemur í veg fyrir að akkeri falli ef bremsa á spili er losuð, hafði verið opinn í sex vikur áður en óhappið varð í innsiglingunni í Vestmannaeyjahöfn 17. nóvember 2023.

 

2.     Spil og öryggisloki/keðjustoppari hafa verið prófuð eftir atvikið. Reyndist hvoru tveggja í fullkomnu lagi og héldu akkeri á sínum stað. Réttur frágangur og eftirlit með öryggisbúnaði um borð í skipi er á ábyrgð skipstjóra hverju sinni.

 

3.     Í ljós hefur komið að um var að ræða annað skiptið á tveimur árum þar sem akkeri tapaðist af Hugin. Á því atviki hafa hvorki fengist skýringar né hvort og þá hvernig brugðist hafi verið við, til að mynda með reglulegu eftirliti til að fyrirbyggja að svona nokkuð endurtæki sig.

 

4.     Sjópróf vegna atviksins eru ákveðin 30. janúar 2024. Sjópróf eru skýrslutökur fyrir dómi til að varpa ljósi á aðdraganda og afleiðinga atviksins sem tjónþolar hafa óskað eftir. Sjópróf koma því ekki til álita þegar fjallað er um afleiðingar á borð við þær hvort menn haldi störfum sínum eða ekki.

Mat mitt sem framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar hf. var að í aðdraganda atviksins hefðu skipstjórnarmenn Hugins ekki rækt skyldur sínar með viðunandi hætti, eins og að framan er lýst. Því var ekki annað verjandi en að gera starfslokasamninga þá. Við það mat stend ég.

Stjórn Verðanda hefur ekki óskað eftir fundi með mér eða aflað upplýsinga frá Vinnslustöðinni hf. vegna atviksins. Í því ljósi sætir þessi ályktun félagsins furðu. Ég er reiðubúinn til að hitta stjórn Verðanda hvenær sem er og fara yfir málið.