Vinnslustöðin og Huginn framúrskarandi fyrirtæki 2021
22/10/21
Vinnslustöðin hf. er í 45. sæti og Huginn ehf. er í 71. sæti á lista alls 853 framúrskarandi fyrirtækja 2021 sem Creditinfo hefur birt.
Hvort fyrirtæki hefur verið á þessum lista níu sinnum frá 2012 til 2021, Vinnslustöðin var ekki í þessum hópi 2013 og Huginn var þar
ekki 2016.
Einungis tvö af hverjum hundrað fyrirtækja á Íslandi uppfylla skilyrði fyrir því að teljast framúrskarandi samkvæmt eftirfarandi skilyrðum Creditinfo:
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3.
- Ársreikningi skal skilað á réttum tíma lögum samkvæmt.
- Fyrirtækið hefur skilað ársreikningi til ríkisskattstjóra undanfarin þrjú ár.
- Fyrirtækið er „virkt“ samkvæmt skilgreiningu Creditinfo.
- Rekstrartekjur voru að minnsta kosti 50 milljónir króna á ári síðustu þrjú ár.
- Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
- Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður síðustu þrjú ár.
- Ársniðurstaða jákvæð síðustu þrjú ár.
- Eiginfjárhlutfall að minnsta kosti 20% síðustu þrjú ár.
- Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár.