Vinnslustöðin kaupir meirihluta í Hólmaskeri í Hafnarfirði
Vinnslustöðin hf. hefur samið um kaup á meirihluta í fiskvinnslufyrirtækinu Hólmaskeri ehf. í Hafnarfirði, með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Hólmasker er í eigu hjónanna Alberts Erlusonar og Jóhönnu Steinunnar Snorradóttur ognýverið keypti félagið rekstur Stakkholts ehf. á sama stað. Allt starfsfólk Stakkholts var ráðið til starfa hjá Hólmaskeri, um 35 manns. Starfsemin verður eftir sem áður í Hafnarfirði og megináhersla lögð áfram á ýsuvinnslu fyrir Bandaríkjamarkað.
Gangi kaupin eftir mun Hólmasker að uppistöðu kaupa ýsu á markaði til vinnslunnar auk þess að kaupa hluta af ýsu af Vinnslustöðinni og öðrum á markaðsverði.
Mestöll ýsa sem skip Vinnslustöðvarinnar færa að landi hefur annað hvort verið seld á markaði hérlendis eða flutt úr landi í gámum. Ýsan yrði eftir kaupin að hluta flutt frá Eyjum til Hafnarfjarðar og unnin þar. Hér yrði því stuðlað að því að efla fiskvinnslu á Íslandi.