Vinnslustöðin færist upp eftir lista fyrirmyndarfyrirtækja
Vinnslustöðin er nr. 37 á lista alls 842 fyrirmyndarfyrirtækja af öllum stærðum og gerðum á landinu öllu árið 2020. Creditinfo birti listann í dag.
Vinnslustöðin var í 46. sæti fyrir árið 2019 og hefur því þokast upp um níu sæti frá því í fyrra á þessum eftirsótta gæðalista!
Einungis um 2% allra íslenskra fyrirtækja standa strangar kröfur sem gerðar eru til að komast í þennan úrvalsflokk fyrirtækja.
Creditinfo skiptir fyrirtækjunum í þrjá flokka eftir stærð:
- Lítil (eignir samtals 100-200 milljónir króna).
- Meðalstór (eignir samtals 200-1.000 milljónir króna).
- Stór (eignir samtals 1.000 milljónir króna eða meira.
Alls eru níu fyrirtæki í Vestmannaeyjum á fyrirmyndarlistanum 2020. Þau eru eftirfarandi, framan við er númer þeirra á lista alls 842 fyrirmyndarfyrirtækja.
37 – Vinnslustöðin hf.
40 – Ísfélag Vestmannaeyja hf.
68 – Huginn ehf.
174 – Ós ehf.
245 – Bylgja VE-75 ehf.
425 – Vélaverkstæðið Þór ehf.
491 – Skipalyftan ehf.
783 – Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja.
838 – Miðstöðin Vestmannaeyjum ehf.
Það að komast á lista fyrirmyndarfyrirtækja snýst í raun um stöðugleika í rekstri en ekki að ná góðum árangri í eitt og eitt ár. Stöðugur og góður árangur ár eftir ár telst framúrskarandi. Detti fyrirtæki út af listanum þarf það framúrskarandi rekstrarárangur þrjú næstu ár til að komast inn á listann á nýjan leik.
Standast þarf eftirfarandi kröfur til að teljast framúrskarandi 2020:
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1, 2 eða 3.
- Ársreikningi skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag.
- Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo.
- Framkvæmdastjóri skráður hjá ríkisskattstjóra.
- Rekstrartekjur að minnsta kosti 50 milljónir króna síðustu þrjú ár.
- Rekstrarhagnaður (EBIT) jákvæður síðustu þrjú ár.
- Jákvæð rekstrarniðurstaða síðustu þrjú ár.
- Eiginfjárhlutfall að minnsta kosti 20% síðustu þrjú ár.
- Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár.