Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Screenshot 2024 01 18 At 13.53.13 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Breki VE kom til hafnar í gærmorgun (þriðjudag 8. september) með 440 kör af góðum afla eftir veiðiferð þar sem rólegt var framan af og bræla en endaði vel í lokin á Þórsbanka.

Tíðindum sætir að Gísli Matthías Sigmarsson var í fyrsta sinn yfirvélstjóri á togaranum og í sama túr var Ríkarð Magnússon yfirstýrimaður. Þeir félagar eru meðal yngstu yfirmanna í flota Vinnslustöðvarinnar og þarna banka því fulltrúar yngri kynslóða á dyr þeirra eldri (og reyndari!) á sínum fagsviðum.

Gísli Matthías útskrifaðist úr vélfræðinámi 2015, hefur verið á hinum og þessum bátum í Eyjum, eina loðnuvertíð á Sighvati Bjarnasyni VE og síðan 1. vélstjóri á Breka frá því í október 2018. Með sér í fyrsta túr yfirvélstjóra hafði hann mann með mikla reynslu og þekkingu, Finn Kristinsson vélfræðing og vélstjóra á Breka. Finnur dvaldi í Kína forðum og var yfireftirlitsmaður með smíði Breka VE og Páls Pálssonar ÍS fyrir hönd Vinnslustöðvarinnar og Hraðfrystihússins Gunnvar í Hnífsdal. Finnur var áhöfn Breka á heimleið frá Kína.

Ríkarð Magnússon var líka í áhöfn Breka heim frá Kína, þá  2. stýrimaður skipsins. Hann er nú 1. stýrimaður og hefur leyst af sem yfirstýrimaður.

Ríkarð er sonur Magnúsar skipstjóra á Breka og þeir feðgar voru áður samtímis á Drangavík VE. Þar var Ríkarður stýrimaður en leysti föður sinn af sem skipstjóri þegar Magnús fór að sinna Brekamálum hér heima og í kínversku skipasmíðastöðinni. 

  • Á efri myndinni eru þeir félagar við skipshlið, Ríkarð t.v. og Gísli Matthías.
  • Á neðri myndinni er Ríkarð í brú Breka á heimleið frá Kína 2018.
1 2020 09 08 093411
2 30711992 1842628839091859 3082467430992183296 N