Þorrablót Vinnslustöðvarinnar
Vinnslustöðin hélt á dögunum í fjórða sinn Þorrablót fyrir starfsmenn sem eru hættir sökum aldurs. Þar gefst fyrrum starfsmönnum tækifæri á að hittast og rifja upp gömlu tímana í Vinnslustöðinni.
Binni framkvæmdastjóri, sagði sérstakt tilefni til að fagna núna því síðasta ár væri eitt það besta í sögu félagsins, bæði í magni og verðmæti afurða.
Ívar Atlason, svæðisstjóri vatnssvið HS Veitna í Eyjum rakti sögu vatns í Vestmannaeyjum í mjög athyglisverðum fyrirlestri um vatn og vatnsleysi fram til ársins 1968 þegar lögð var vatnsleiðsla frá landi til Eyja. Friðbjörn Valtýsson sagði sögur frá gostímanum 1973.
Ívar Atlason, ræðumaður
Veislan var haldin í nýlegri starfsmannaaðstöðu Vinnslustöðvarinnar
Jakob Möller og Rut Ágústsdóttir
Friðbjörn Valtýsson, Svava Gunnarsdóttir, Kristín Gísladóttir og Sverrir Gunnlaugsson