Þéttsetin Höllin í jólakaffinu
Ætla má að um 350 manns hafi sótt jólakaffi Vinnslustöðvarinnr í Höllinni síðastliðinn sunnudag, 11. desember, hefðbundinn atburð starfsmanna félagsins á aðventunni. Þetta var þrettánda jólakaffið frá upphafi og líklega hið fjölmennasta hingað til.
Séra Viðar Stefánsson, nýr sóknarprestur Eyjamanna, flutti hugvekju sem góður rómur var gerður að. Hann er úr Gnúpverjahreppi í Árnessýslu og þarna höfðu flest sóknarbörnin í salnum fyrstu kynni af nýja prestinum sínum.
Annar gestur var kunnuglegri frá fyrri tíð: sjálfur jólasveinninn. Hann mætti með nammi í poka handa fjölmörgum börnum starfsmanna á vettvangi.
Veisluborðin svignuðu undan öllum kræsingunum, það var gott með kaffinu nú sem endranær.
Starfsmenn fengu jólagjafir fyrirtækisins og nokkrir þeirra viðurkenningu að auki í tilefni tímamóta, afmælis eða starfsloka.
Hér eru aðstandendur viðurkenninganna, Sigurgeir B. Kristgeirsson – Binni framkvæmdastjóri lengst til vinstri og Þór Vilhjálmsson lengst til hægri. Annars frá vinstri:
- Jason Stefánsson fyrir hönd Inga Árna Júlíussonar – Inga Júl. í tilefni sjötugsamælis.
- Kristinn Andersson í tilefni þess að hann lætur af störfum eftir um 30 ár hjá Vinnslustöðinni.
- Baldur B. Birgisson fyrir hönd Kristins Valgeirssonar í tilefni fimmtugsafmælis.
- Jasoslav R. Pustula í tilefni fimmtugsafmælis.
- Ingigerður Helgadóttir í tilefni fimmtugsafmælis.
- Gunnar Davíð Gunnarsson fyrir hönd Erlendar Gunnars Gunnarssonar í tilefni fimmtugsafmælis.
Séra Viðar Stefánsson.