Sýslumaður hafnar kröfu um lögbann
30/08/16
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum hafnaði í dag kröfu Brims hf. um að setja lögbann á hluthafafund í Vinnslustöðinni hf. á morgun. Jafnframt synjaði sýslumaður kröfu Brims um að Vinnslustöðinni væri gert að greiða málskostnað að mati sýslumanns og annan kostnað sem gerðarbeiðandi (Brim) hefði af málinu.
- Hluthafafundur Vinnslustöðvarinnar hf. er boðaður kl. 11 á morgun, miðvikudag. Þar verður kjörin ný stjórn í félaginu.