Fara á efnissvæði
World Map Background Image
DJI 20241007143049 0002 D Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Vel gengur hjá iðnaðarmönnunum sem byggja upp á Vinnslustöðvarreitnum. Húsið verður tveggja hæða um 5.600 fermetrar og mun hýsa saltfiskvinnslu á neðri hæð og innvigtun uppsjávarafla á efri hæð.

„Í dag var steyptur annar hluti af þremur í plötunni. Þeir stefna svo á að steypa þriðja partinn í næstu viku.“ segir Willum Andersen, tæknilegur rekstrarstjóri Vinnslustöðvarinnar í samtali við Vinnslustöðvar-vefinn. Þá segir hann að byrjað sé á að hækka austurvegginn.

„Þeir stefna á að verða búnir að loka húsinu í lok nóvember. Einnig er byrjað að byggja húsið sem kemur í portinu á milli fiskimjölsverksmiðju og mótorhúss. Þá stefna þeir á að steypa plötuna þar fyrir mánaðarmót. Byggingin hefur gengið mjög vel síðustu misseri og er ótrúlegur hraði á þessu.“ segir Willum.

Nýtt myndband frá framkvæmdunum má sjá hér að neðan.