Nútímavæða öryggismál um borð í skipunum
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að innleiðingu á öryggisstjórnunarkerfinu Öldunni hjá áhöfnum á skipum Vinnslustöðvarinnar.
Lilja B. Arngrímsdóttir, mannauðsstjóri VSV segir í samtali við VSV-vefinn að í fyrrasumar hafi Gísli Níls Einarsson, sérfræðingur í öryggismálum, haft samband við hana og spurt hvort Vinnslustöðin vildi fá kynningu á nýrri stafrænni lausn í öryggismálum sjómanna sem hann var að þróa.
Smáforrit sem skipverjar setja í símana
„Við vorum strax mjög jákvæð fyrir þessu verkefni sem Gísli var þarna að hefja spennandi vegferð á og í dag er orðið að öryggisstjórnunarkerfinu Öldunni. Við hjá Vinnslustöðinni þekkjum Gísla vel þar sem hann starfaði áður hjá VÍS, tryggingafélagi fyrirtækisins, í forvörnum og ráðgjöf við viðskiptavini VÍS. Gísli er drífandi og hvetjandi og hefur mjög víðtæka þekkingu þegar kemur að öryggismálum á sjó.”
Forritið sem um ræðir er smáforrit sem skipverjar hafa hlaðið upp í símana sína og eru allir skipverjar virkjaðir í að nota kerfið. Með notkun á kerfinu verða öryggismál ekki á ábyrgð eins skipverja heldur allra. Með Öldunni öryggisstjórnunarkerfinu er verið að nútímavæða skipulag og framkvæmd öryggismála um borð í fiskiskipum og efla öryggisvitund sjómanna enn frekar. Kerfið setur öryggismál á dagskrá með reglubundnum björgunaræfingum, eigin skoðunum á öryggis- og björgunarbúnaði ásamt því að halda utan um nýliðafræðslu um borð. Útgerðin getur fylgst með virkni á kerfinu og framgangi mála auk þess sem til verða verkefni í kjölfar æfinga og úttekta sem kallar á eftirfylgni útgerðar.
Lilja segir að til að hefja vegferð þeirra á innleiðingu kerfisins þá hafi hún fengið Sigurjón Viðarsson, skipstjóra á Þórunni Sveinsdóttur VE, til að vera henni innan handar og hófst innleiðingin í Þórunni Sveinsdóttir haustið 2023.
„Skipverjarnir á Þórunni voru þá í raun orðnir hluti af notendaprófunum og þróun öryggisstjórnunar-kerfisins en þróun á svona kerfi gerist að miklu leyti með aðstoð þeirra sem nota kerfið í þágu eigins öryggis. Vinnslustöðin hefur nú fjárfest í kerfinu og eru allir skipverjar útgerðarinnar orðnir notendur að Öldunni. Gísli Níls og Gunnar, sérfræðingar í öryggismálum, funduðu með áhöfnum skipanna um kerfið og notkun þess þegar skipin komu í land fyrir sjómannadag og er kerfið þegar komið í góða notkun um borð í skipunum.” segir Lilja Arngrímsdóttir.
Komist ótrúlega langt á skömmum tíma
Að sögn Gísla Níls Einarssonar, framkvæmdastjóra Öldu er þróunin á Öldunni enn í fullum gangi og munu ýmsar nýjungar líta dagsins ljós núna í haust.
„Til dæmis sjálfvirk rafræn þjálfunaráætlun sem minnir áhafnir á að gera reglubundnar lögbundnar björgunaræfingar og öryggisúttektir, rafræn öryggishandbók skipa og stafrænt áhættumat í Öldu-appinu. Þessar nýjungar munu umbylta allri öryggisstjórnun til sjós enn frekar. Síðan eru fleiri nýjungar í farvatninu sem snúa að notkun á nýjustu tækni svo sem gervigreind og vélnámi sem gengur út á að kerfið sé að læra af þeim hættum sem sjómenn skrá í kerfið og komi sjálfkrafa með tillögur til sjómanna um mótvægisaðgerðir til að efla öryggi um borð í skipum þeirra.
Þetta eru allt mjög spennandi nýjungar sem við erum að þróa í samvinnu við sjómenn, öryggis-/útgerðastjóra útgerða, slysavarnaskóla sjómanna og Samgöngustofu. Það er alveg ótrúlegt hvað við höfum komist langt í þróun á Öldunni á svona skömmum tíma en það er sjómönnum og útgerðum að þakka ásamt tryggum styrktaraðilum Siglingaráð, Félag skipstjórnarmanna, Sjómannasamband Íslands, TM og Sjómennt.
Í lok síðasta árs fjárfesti svo Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, 10 útgerðir og Ábyrgar fiskveiðar í Öldunni sem lögðu svo grunninn að rekstri fyrirtækisins í dag. Að lokum vil ég koma sérstökum þökkum á framfæri til stjórnenda Vinnslustöðvarinnar sem ákváðu síðasta sumar að borga innleiðingu á Öldunni fyrirfram, áður en að kerfið var klárt, sem gerði það að verkum að við höfum nægt fjármagn til að halda áfram með þróunina á Öldunni síðasta sumar. Eins og maðurinn sagði, það er alltaf gott að eiga Vestmannaeyinga að.” segir Gísli Níls framkvæmdastjóri Öldunnar að lokum.