Nú er það silfruð síldin
12/09/23
„Við erum úti fyrir Fáskrúðsfirði á heimleið með 950 tonn af fínustu síld sem veiddist í Héraðsflóa. Þetta lítur allt saman ljómandi vel út,“ sagði Magnús Jónasson, skipstjóri á Ísleifi, um hádegið í dag.
Síldarvertíðin er með öðrum orðum hafin. Huginn VE kom til Eyja í morgun með 800 tonn og Gullberg VE er á miðunum fyrir austan.
Flotinn er við veiðar í Héraðsflóa og á Bakkaflóadýpi.
- Meðfylgjandi myndir tók Addi í London í morgun þegar Huginn VE kom til hafnar.