Notaleg stund í jólakaffi Vinnslustöðvarinnar
Á fimmtudaginn sl. var hið árlega jólakaffi Vinnslustöðvarinnar haldið í Höllinni. Þar er starfsmönnum og fjölskyldum boðið til kaffisamsætis. Jólasveinarnir kíkja ávallt í heimsókn og gleðja börnin með nærveru sinni og gjöfum. Um áratuga hefð er að ræða sem er bæði skemmtileg og notaleg. Við sama tækifæri eru starfsmenn sem standa á tímamótum heiðraðir.
Þeir sem mættu og voru heiðraðir voru:
- Ester Ólafsdóttir – starfslok vegna aldurs í Leo Seafood. 68 ára fiskvinnslukona í Leo Seafood frá því að fyrirtækið var stofnað.
- Gísli Erlings – starfslok vegna aldurs í Hafnareyri. 71 árs smiður sem hefur starfað í 4,5 ár í Hafnareyri.
- Orlando Soares – starfslok vegna aldurs í Fiskvinnslu VSV. 71 árs fiskvinnslumaður í VSV í rúm 6 ár. Kemur frá Portúgal og mætir manni alltaf með hlýju brosi og jákvæðni og er alls ekki tilbúinn að hætta að vinna.
- Robert Szczepan Daszkiewic – 60 ára á árinu. Fiskvinnslumaður í VSV í tæp 11 ár. Kemur frá Póllandi og er lykilstarfsmaður á uppsjávarvertíðum í fiskvinnslunni.
Til stóð að heiðra fleiri vegna starfsloka og stórafmæla ef þeir hefðu átt tök á að mæta. Þar á meðal voru sjómenn sem áttu ekki heimangengt vegna vinnu sinnar.
„Við viljum þakka Kvenfélaginu Líkn fyrir veitingarnar og Hallarfólki fyrir að taka á móti okkur með jólalegri Höll. Jólasveinarnir voru það góðir að þeir verða sennilega að gera sér ferð af fjöllum á þennan árlega viðburð hér eftir.” segir Lilja Björg Arngrímsdóttir, yfirmaður starfsmannamála hjá VSV í samtali við vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.
Myndasyrpu frá samverunni má sjá hér að neðan.