Makríldómur fer fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni Vinnslustöðvarinnar hf. um leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar frá 7. nóvember sl. um skaðabætur vegna svokallaðs makrílmáls. Ríkið óskaði jafnframt eftir leyfi til að áfrýja dómi í sambærilegu máli Hugins og samþykkti Hæstiréttur einnig þá beiðni.
Forsaga málsins er sú að með dómum Hæstaréttar 6. desember 2018 var viðurkennd skaðabótaskylda ríkisins gagnvart Vinnslustöðinni annars vegar og Hugins hins vegar. Dómar hafa gengið í héraði og í Landsrétti um fjárhæð skaðabóta. Landsréttur staðfesti dóm Hugins í héraði en lækkaði bætur Vinnslustöðvarinnar.
Fram kemur í ákvörðuninni að Hæstiréttur telji að dómur í málinu geti haft fordæmisgildi um sönnunarfærslu og ákvörðun fjártjóns og var beiðnin því samþykkt.