Lítið af loðnu í þorskmögum í togararallinu sem Breki VE lauk með bravúr
Árlegu togararalli Hafrannsóknastofnunar í marsmánuði er lokið. Fjögur skip mældu á 580 fyrirfram gefnum rannsóknastöðvum hringinn í landið, þar af voru 154 stöðvar á könnu Breka VE suður af og suðaustur af landinu.
Kastað var og veitt á öllum stöðum allt niður á 500 metra dýpi, fiskurinn kannaður, veginn og metinn á alla kanta og allar upplýsingar færðar í gagnagrunn eftir kúnstarinnar reglum.
Togararallið er grunnstoð í rannsóknum nytjastofna á miðunum við landið og mikilvæg forsenda veiðiráðgjafar Hafrannsóknastofnunar. Rallið í ár var hið fertugasta í röðinni og þegar samanburðarhæfum upplýsingum hefur verið safnað í svo langan tíma gefur auga leið að glögga mynd má fá af ástandinu á hverjum tíma og þróuninni í hafinu þegar horft er um öxl til lengri tímaskeiða.
Áhöfnin á Breka tók þátt í marsrallinu fjórða árið í röð, Gullver NS, togari Síldarvinnslunnar, var líka með í fjórða sinn og sinnti stöðvum fyrir austan og norðaustan land. Rannsóknamenn Hafró voru um borð í togurunum og sinntu verkefnum í samstarfi við áhafnir og útgerðir skipanna.
Á móti togurunum voru svo rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson fyrir vestan og norðan land.
Lítið um loðnu í mallakútum þorska
Fjallað er um nýafstaðið togararall í 200 mílum Morgunblaðsins í dag, 23. mars. Þar hefur Ingibjörg G. Jónsdóttir, fiskivistfræðingur og verkefnisstjóri stofnmælinga botnfiska, orð fyrir Hafrannsóknastofnun. Fram kemur hjá henni að rannsóknastöðvar úti fyrir Vestfjörðum séu þéttar en hins vegar gisnar undan suðurströndinni:
„Aflinn er mjög mismunandi eftir svæðum og fyrir okkur skiptir það ekki síður máli að gera mælingar á stöðum þar sem alla jafna er lítið af fiski svo við fáum betri mynd af útbreiðslu stofnanna. Fyrir vikið erum við einnig að taka tog á slóðum þar sem sjómenn eru ekkert endilega að sækja.“
Þá er haft eftir Ingibjörgu að það sem finnist í maga þorsks, ýsu og ufsa varpi með öðru ljósi á viðfangsefnið (feitletrun: vsv-vefurinn):
„Magainnihaldið gefur okkur upplýsingar um smærri tegundir í vistkerfi hafsins, líkt og ljósátu og ísrækju, og getur sýnt okkur útbreiðslu og samdrátt eða fjölgun hjá þeim tegundum sem bolfiskar lifa á. Þannig sáum við við það í þetta skiptið að í heildina var áberandi lítið af loðnu í maga þeirra þorska sem við skoðuðum miðað við fyrri ár og styður það við þær mælingar sem hafa farið fram í vetur og leitt í ljós að lítið er af loðnu á miðunum.“
Gagnkvæm ánægja ríkir með samstarfið
Fram kom í viðtali hér á vsv-vefnum í miðju togararalli að stjórnendur Vinnslustöðvarinnar séu afar ánægðir með samstarfið við stjórnendur Hafró, vísindamenn og rannsóknafólk um borð í Breka. Þetta er haft eftir Sverri Haraldsson, sviðsstjóra á botnfisksviði VSV.
Ánægja með samstarfið er gagnkvæm ef marka má það sem haft er í dag eftir verkefnisstjóra Hafrannsóknastofnunar í 200 mílum:
„Þá segir Ingibjörg að útgerðarfélögin sem taka þátt í rallinu sinni hlutverki sínu með miklum sóma og samstarfið sé einkar gott.
„Allir um borð eru afskaplega hjálplegir og það fer vel um okkur vísindamennina um borð.“
Strax og komið er í land hefst vinna við að greina gögnin og í apríl verður gefin út skýrsla með helstu niðurstöðum.“
- Á vef Hafrannsóknastofnunar birtust nokkrar myndir úr leiðangri Breka VE núna í mars 2024 Sjá hér.
- Valur Bogason, sjávarvistfræðingur á starfsstöð Hafrannsóknastofnunar í Vestmannaeyjum, tók hópmyndina af áhöfn Breka og starfsfólki Hafró, í einkennisbúningi leiðangursins, sérmerktum skyrtubolum í tilefni af því að þetta var fertugasta rallið frá upphafi.
- Hér fylgir kort af rannsóknarsvæðum skipanna fjögurra í rallinu. Siglinga- og veiðileið Breka er gul, leið Árna Friðrikssonnar blá, leið Bjarna Sæmundssonar rauð og leið Gullvers hvít.