Kaupin á Glófaxa samþykkt á hluthafafundi VSV
Samningur um kaup Vinnslustöðvarinnar á öllum hlutabréfum í Útgerðarfélaginu Glófaxa ehf. í Vestmannaeyjum var samþykktur á hluthafafundi í VSV í dag gegn atkvæðum næststærsta hluthafans, Brims hf.
Kaupin á Glófaxa voru tilefni hluthafafundarins í dag. Brim hf. á um þriðjungshlut í Vinnslustöðinni og Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims á sæti í stjórn VSV. Hann lýsti yfir á fundinum að meirihluti stjórnar VSV hefði neitað að veita sér nægjanlegar upplýsingar um kaupin á Útgerðarfélaginu Glófaxa. Því myndi hann leggjast gegn kaupunum við afgreiðslu málsins.
Samningur um Glófaxakaupin samþykktur í dag.
Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar, mótmælti ummælum nafna síns frá Brimi og sagði að stjórnarmenn og hluthafar hefðu fengið allar upplýsingar sem máli skiptu um kaupsamninginn á stjórnarfundi í gær og í kynningu Þorvarðar Gunnarssonar löggilts endurskoðanda á hluthafafundinum í dag. Guðmundur Örn vísaði því á bug að Guðmundur Kristjánsson hefði verið leyndur einhverjum upplýsingum sem tengdust kaupum á Glófaxa.
Kaupin á Glófaxa voru samþykkt að umræðum loknum og hluthöfum síðan boðið að skoða nýja uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar.
Vinnslustöðin eignast nú stærstan hluta fiskveiðiheimilda Glófaxa, liðlega 900 þorskígildistonn (meirihlutann í þorski), netabátinn Glófaxa VE-300, fasteign að Strandvegi 89 í Vestmannaeyjum, veiðarfæri og ýmsa aðra lausafjármuni.
VSV fær Útgerðarfélagið Glófaxa afhent að óbreyttu 1. októberber 2017 en í kaupsamningi, sem undirritaður var fyrr í sumar, eru hefðbundnir fyrirvarar um áreiðanleikakönnun, fjármögnun, samþykkti Samkeppniseftirlits og samþykki stjórnar og/eða hluthafafundar.
Seljendur eru eigendur alls hlutafjár í Útgerðarfélaginu Glófaxa, Bergvin Oddsson og fjölskylda.
Seljendur halda eftir línu- og netabátnum Glófaxa II VE-301 og 50 þorskígildistonnum og hyggjast stunda útgerð áfram. Þá halda seljendur eftir Glófaxanafninu og verður því breytt um nafn á bæði Útgerðarfélaginu Glófaxa og Glófaxa VE-300 við eigendaskiptin í haust.
Bergvin Oddsson, Hrafn Oddsson og Sævaldur Elíasson keyptu Glófaxa VE-300 á árinu 1974 og stofnuðu útgerðarfélagið Snæfell sf. um reksturinn. Bergvin keypti Hrafn og Sævald út 1986 og árið 1994 var nafni félagsins breytt í Útgerðarfélagið Glófaxi.
Þorvarður Gunnarsson löggiltur endurskoðandi kynnti kaupsamninginn á hluthafafundinum í dag.