Kátt í Höllinni í jólakaffi VSV
Jólin koma. Yfirgnæfandi líkur eru á að það gerist árlega. Jólakaffi Vinnslustöðvarinnar er að sama skapi fastur viðburður í aðdraganda hátíða í Vestmannaeyjum. Fjölmennt var í Höllinni af þessu tilefni annan sunnudag aðventu, mikil stemning og hlaðin borð veislufanga í umsjón Starfsmannafélags Vinnslustöðvarinnar.
Jólasveinn leit að sjálfsögðu inn galvaskur og dreifði nammi á báða bóga til ungviðisins.
Ókennisklæddir jólasveinar afhentu hins vegar starfsmönnum jólagjafir frá VSV , margnota brúsa sem halda heitu eða köldu og gjafabréf frá Íslandsbanka að verðmæti 12.500 krónur.
Starfsmenn á tímamótum voru að vanda heiðraðir, annars vegar í tilefni stórafmæla og hins vegar þeir sem luku störfum á árinu og voru leystir út með gjöfum í þakklætisskyni og með árnaðaróskum.
- Andrea Elín Atladóttir varð fimmtug 3. september.
- Baldur Þór Bragason varð sextugur 22. maí.
- Elsbieta Chachulav varð sextug 22. ágúst.
- Jóhann Brandur Georgsson varð sextugur 30. október.
- Kristján L. Möller varð sextugur 8. júlí.
- Sigurður Óskar Sveinsson varð sextugur 13. júní.
- Edward Switalski lauk störfum eftir 8 ár í VSV.
- Sverrir Gunnlaugsson lauk störfum eftir 31 í VSV.
Á daginn kom í jólakaffinu að Jóhann Brandur var ekki á stórafmælalistanum en átti átti þar svo sannarlega heima. Hann er beðinn velvirðingar á því. Það sem verra er að hann heldur ekki á listanum fyrir tíu árum í tilefni af fimmtugsafmæli sínu.
Karlinn heldur sér svo vel að í upplýsingakerfi VSV er hann alltaf skráður 25 ára og ekki degi eldri.
Addi London tók myndirnar í Höllinni.