Kap inn, Ísleifur út
1/03/17
KAP kom til hafnar í morgun með fullfermi af loðnu sem fór beint í kúttun. Sighvatur Bjarnason fékk 700 tonn hjá KAP í gærkvöld og bætti svo við sig 200 tonnum. Það er sum sé rífandi gangur í vertíðinni.
Þegar KAP kom til Eyja var Ísleifur VE á útleið með nýviðgerða nót. Nótin rifnaði illa og unnið var að lagfæringum í alla nótt.