Jólagjafir, afmæli og starfslok
Hefð er fyrir því að Vinnslustöðin bjóði starfsmönnum sínum í jólakaffi á aðventunni og færi þeim gjafir og heiðri sérstaklega þá sem eru að láta af störfum eða átt hafa stórafmælinu á árinu.
Jólakaffið féll niður í ár vegna samkomutakmarkana en starfsmenn fengu engu að síður afhentar gjafir vegna jóla, afmælis eða starfsloka. Þá má ekki gleyma jólasíldinni sem aldrei hefur verið jafn eftirsótt og vinsæl sem nú.
Starfsmenn fengu afhentar síldarfötur og síðan var farið með síldarglaðning í hús til hluthafa, fyrrverandi starfsmanna og ýmissa velunnara félagsins. Síldin í ár fær afbragðsgóða umsögn viðtakenda.
Jólagjöfin til starfsmanna í ár var gjafakort Íslandsbanka og Kiwanis-nammikassi. Fyrrverandi starfsmenn fengu konfektkassa með jólakveðju frá Vinnslustöðinni.
Tímamót vegna starfsloka
- Elzbieta Cybulska
- Ryszard Cybulski
- Friðbjörn Valtýrsson
- Ólöf Hauksdóttir
Tímamót vegna stórafmælis
- Ingibjörg Sigurjónsdóttir – 70 ára
- Armando Martins – 60 ára
- Eyjólfur Guðjónsson – 60 ára
- Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson – 60 ára
- Ágúst Einarsson – 60 ára
- Sveinn Magnússon – 50 ára
- Kolbeinn Agnarsson – 50 ára
- Lovísa Inga Ágústsdóttir – 50 ára
Á meðfylgjandi myndum eru 1) Eyjólfur Guðjónsson, 2) Ágúst Einarsson og Lilja Björg Arngrímsdóttir, 3) Haffi og Benni á Breka VE með jólagjafir og síld, 4) Ingigerður Helgadóttir, flokksstjóri í uppsjávarvinnslunni, afhendir Kolbeini Agnarssyni síldarfötu, 5) Jónas Bergsteinsson með konfektkassa, 6) afmælisbörn á skrifstofu VSV: Lovísa Inga Ágústsdóttir, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson og Ingibjörg Sigurjónsdóttir.