Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Screenshot 2024 01 12 At 10.49.24 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Aðalvélin í Kap VE bilaði þegar skipið var á loðnumiðum fyrir norðaustan landið í gær. Annað skip frá Vinnslustöðinni, Ísleifur VE, var þar ekki langt frá og tók Kap í tog áleiðis til Akureyrar. Veður var skaplegt, allt gekk vel fyrir sig og engin hætta á ferðum.

Skipin voru á Grímseyjarsundi í morgun og gert ráð fyrir að þau yrðu í mynni Eyjafjarðar um hádegisbil. Þá kemur lóðsbátur á móti þeim og dregur Kap til Akureyrar en Ísleifur snýr á ný til loðnuveiða, sagði Jón Atli Gunnarsson, skipstjóri á Kap, í samtali um níuleytið í morgun:

„Við vorum að toga og ætluðum að fara að hífa þegar boð bárust frá vélstjórum um að vélarbilun. Okkur tókst að ná hlerum um borð með afli aðalvélarinnar en notuðum svo ljósavélar til að dæla aflanum um borð, um 200 tonnum af loðnu, og ná síðan veiðarfærunum.

Ég hafði strax samband við Ísleif og áhöfn hans var þá nýbúnin að hífa. Vel gekk að koma taug á milli skipanna og engin dramatík var í kringum þetta.

Við vitum ekki hvers eðlis bilunin er en vonandi tekur viðgerð ekki langan tíma. Það vitum við samt ekki fyrr en málið verður kannað betur á Akureyri.“