Ísleifur VE með fyrstu loðnuna til Eyja
Eyjólfur Guðjónsson og áhöfn hans á Ísleifi VE-63 komu með fyrsta loðnufarminn til Vestmannaeyja á vertíðinni, 250 tonn af fínum og átulausum fiski sem veiddist út af Hornafirði í gær.
Það ríkir alltaf stemning og eftirvænting til sjós og lands þegar loðnuvertíð hefst. Vel mátti skynja spennu í lofti í nýju uppsjávarfrystihúsi Vinnslustöðvarinnar þegar sást til Ísleifs í morgunskímu og snjófjúki í innsiglingunni.
Flókinn og margslunginn vél- og tæknibúnaður í flokkun og pökkun frystihússins skilaði því sem af honum var ætlast. Slíkt er ekki alveg sjálfgefið þegar mest á ríður. Mönnum létti þegar allt gekk eins og í sögu.
Fulltrúar japanskra kaupenda loðnuafurða komu til Eyja í gærkvöld og voru mættir á hafnarbakkann laust eftir rismál. Þeir deila frumsýningarstemningu með heimamönnum í dag.
Ísleifur VE hét áður Ingunn AK 150, gerð út af HBGranda. Vinnslustöðin keypti skipið sumarið 2015.
Ísleifur VE kemur til hafnar í morgunskímu sprengidagsins.
„Gott skip sem getur borið allt að 2.000 tonnum,“ segir Eyjólfur skipstjóri. „Fyrir 30 til 40 árum hefði þótt tíðindum sæta að fá 250 tonn af loðnu í tveimur köstum en nú vill maður helst ekki tala um að koma til hafnar með svo lítið í lestinni! Tímarnir eru breyttir, nú skipta hráefnisgæðin meira máli en tonnafjöldi upp úr sjó.“
Eyjólfur hefur verið til sjós í 35 ár og skipstjóri frá 1987, með sömu körlunum í áhöfn ár eftir ár.
Eyjólfur leggur að bryggju í Vestmannaeyjum á níunda tímanum í morgun.
„Það er lítil hreyfing á mannskapnum, sem betur fer. Við erum allir Eyjamenn um borð að tveimur undanskildum, annar aðkomumaðurinn er fastráðinn en hinn í afleysingum. Góður og samhæfður hópur.
Hvenær við förum aftur til veiða? Kannski á morgun. Þú verður annars að spyrja þá sem stjórna Vinnslustöðinni. Skipstjórar ráða fjandakornið engu lengur, við tökum bara við fyrirmælum úr landi!“
Kóngurinn í ríki sínu. Eyjólfur Guðjónsson í brú Ísleifs VE.
Annað Vinnslustöðvarskip, Kap VE, fór frá Eyjum í gærkvöld áleiðis á miðin fyrir austan land. Meiningin er að það komi til hafnar á morgun, miðvikudag, til löndunar. En auðvitað að því gefnu að viðri til veiða.
Nú er bræla en hún breytir engu um þá staðreynd að loðnuvertíð er hafin í Eyjum. Sjálfur sprengidagurinn hófst með langþráðum og umtalsverðum loðnuhvelli.
Guðni I. Guðnason, umsjónarmaður skipa og fasteigna VSV, og Eyjólfur skipstjóri bera saman bækur sínar.
Japani stúderar loðnu sem synti í sjó austur af Hornafirði þar til í gær ... ferskara getur hráefnið tæpast orðið.
Hrogn kreist úr hrygnum og afurðirnar vegnar og mældar.
Ingigerður Helgadóttir, flokksstjóri í uppsjávarvinnslu VSV, við pökkunarvél sem skilar loðnunni í kössum, tilbúnum til frystingar. Myndir: VSV/ARH