Húsfyllir í jólakaffi VSV
Svo fjölmennt var í jólakaffi Vinnslustöðvarinnar að þessu sinni að sumir fengu ekki sæti og urðu að standa en kvörtuðu samt hvergi. Að minnsta kosti 200 manns mættu í Golfskálann og svo margmennt hefur ekki verið á jólasamkomunni um árabil.
Jólakaffi VSV er árlegur viðburður á aðventunni. Stjórn starfsmannafélagsins undirbýr mannfagnaðinn og starfsmenn sáu um bakkelsið.
Guðni Hjálmarsson, prestur í Betel, flutti hugvekju. Elísabet Guðnadóttir og Helgi Tórzhamar fluttu ljúf jólalög og rétt er að benda á að en þau efna til tónleika, Jólahvísls, 21. desember í Hvítasunnukirkjunni í Vestmannaeyjum.
Jólasveinn mætti að sjálfsögðu og nestaði börn með sætindum fyrir heimferðina. Starfsmenn VSV voru líka leystir út með gjöfum.
Starfsmenn sem fagna fimmtugs- og sextugsafmælum um þessar mundir fengu armbandsúr af betri gerðinni að gjöf.
50 ára afmælisbörn:
- Sigfús Pétur Pétursson – Breki VE
- Jón Högni Stefánsson – Drangavík VE
- Haraldur Hannesson – Kap VE
- Gunnar Ingólfur Gíslason – Ísleifur VE
- Valdimar Gestur Hafsteinsson – Kap VE.
60 ára afmælisbörn:
- Magnús Jónasson – Ísleifur VE
- Grettir Ingi Guðmundsson – Brynjólfur VE
- Lech Bruszkiemicz – fiskvinnsla VSV.
Fjórir fengu armbandsúr í tilefni af starfslokum vegna aldurs. Þeim var jafnframt þakkað fyrir óeigingjarnt starf og góð verk í þágu félagsins:
- Sigurður Friðbjörnsson – fiskimjölsverksmiðja VSV
- Jónas Bergsteinsson – fiskimjölsverksmiðja VSV
- Helgi Geir Valdimarsson – Ísleifur VE
- Viðar Sigurbjörnsson – Hafnareyri.