Fara á efnissvæði
World Map Background Image
DSC 7069 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Haustrall Hafrannsóknastofnunar er hafið og munu tvö skip frá Vinnslustöðinni taka þátt í rallinu að þessu sinni. ​Auk þeirra er rannsóknarskipið Árni Friðriksson að mæla. ​Toga​ð er á mörg hundruð stöðvum á mismiklu dýpi á landgrunninu.

Þetta hefur verið gert með sama hætti frá því árið 1985 og þannig fást sambærilegar upplýsingar um stofnstærð, aldurssamsetningu, fæðu, ástand og útbreiðslu helstu nytjastofna við landið. Jafnframt er fylgst með hitastigi sjávar og ýmsu fleiru, svo sem mengandi efnum í sjávarfangi.

20220608 141604

Magnús Ríkarðsson, skipstjóri með Breka í baksýn.

Áttunda rallið hjá Breka

Rallið sem nú er að hefjast er áttunda rallið sem Breki VE tekur þátt í, fjórða haustrallið. Þórunn Sveinsdóttir​ VE, sem einnig er leigð í rallið, tekur þátt í annað sinn en skipið rallaði fyrst sl. haust.

Þegar fréttaritari VSV heyrði í ​Magnúsi Ríkarðssyni, skipstjóra á Breka var hann á útstíminu laust fyrir klukkan 14 í gær.

„Þetta rall er hringurinn. Útkantar á íslensku lögsögunni svokallað djúpsjávarrall.“ segir hann og bætir við „Það er farið allt niður á 600 faðma.“

Spurður um hvernig svona leiðangur sé frábrugðin hefðbundnum veiðum, segir Magnús að þetta sé mjög frábrugðið. „Já, þetta eru 155 stöðvar sem þeir taka. Það er togað í 40 mínútur á hverri stöð og það skráð. Allt er mælt og skráð. T.d. hitastig og selta.“

Hvað búist þið við að vera lengi í rallinu?   Mesta áhættan er veðrið. Ef allt gengur upp getum við tekið þetta á 21 degi – höfn í höfn.

IMG 6261

Breki gerður klár fyrir rallið

Ágætt að taka þátt í að efla þjóðarbúið

Óskar Þór Kristjánsson, skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur tekur í sama streng og Magnús. „Við förum út í kvöld. Förum sama hring og Breki og tökum grunnslóðina.“ sagði Óskar seinnipartinn í gær.

Aðspurður um hvort hann hafi tekið þátt áður í ralli, svarar Óskar léttur í bragði: „Ég fór líka með skipið í fyrra. Ég er með reynslu í að ralla. Það er ágætt að taka þátt í þessu, að efla þjóðarbúið. Reyna að finna fisk.“

Hann segir að alls séu fimm um borð frá Hafró. Það er leiðangursstjóri og svo fjórir í að mæla.

IMG 6319

Óskar Þór á bryggjunni í gær.

IMG 6313

Þórunn Sveinsdóttir gerð sjóklár fyrir rallið.