Góður fyrirboði mættur í bergið
Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari og fuglaáhugamaður fylgist vel með fuglalífinu. Þetta hefur hann gert í að verða þrjá aldarfjórðunga, og tók hann við keflinu af föður sínum sem einnig hafði haft sömu iðju uppi í áratugi.
Í ferð sinni austur á Eyju í morgun tók Sigurgeir upp kíkinn til að kanna bergið í Ystakletti. Viti menn, þar sá hann svartfuglinn sestan upp. Sigurgeir sá svartfugla sitja á þremur til fjórum sillum rétt austur af Klettshelli. „Það stóðu tveir fuglar með bringuna fram, sem er fátítt. Yfirleitt snúa þeir bringunni að berginu,” segir hann.
Svartfuglinn er ekki einungis einn af boðberum vorsins heldur gefur hann einnig góð fyrirheit um að loðnan sé að nálgast landið. Sigurgeir hefur haldið dagbækur svo áratugum skiptir og skráir meðal annars hjá sér hvenær svartfugl sest upp í bergið í Ystakletti. Það gerist venjulega nálægt miðjum febrúar og má því segja að fuglinn sé nokkurnveginn á réttu róli núna.
Hvar er leitarskipið?
„Hvar er leitarskipið?” spurði Sigurgeir í samtalinu við fréttaritara VSV. „Þeir þurfa ekki að leita nema frá Hornafirði til Eyja að loðnunni,” bætir hann við en í gegnum tíðina hefur loðnu orðið vart fljótlega eftir að svartfuglinn er sestur upp. „Flotinn var oft að veiðum suður af Eyjum inn af Elliðaey u.þ.b. viku eftir að fuglinn settist upp.”
Hávarður Sigurðsson er annar glöggur fuglaáhugamaður. Við heyrðum í honum einnig um hvort hann hafi séð svartfuglinn. „Já, þetta passar. Ég sá að hann var kominn í Klettinn í dag,” segir hann í samtali við Vinnslustöðvar-vefinn.
Það verður því spennandi að fylgjast með loðnumælingum næstu dagana við sunnanvert landið.