Góðra vina fundur á sjómannahátíð
4/06/24
Stemning og stuð í Eldheimum síðdegis á laugardaginn þegar Vinnslustöðin bauð áhöfnum skipa sinna og mökum þeirra til teitis.
Jarl sá um tónlistarhlið samkomunnar.
Afar vel lá á mannskapnum líkt og meðfylgjandi myndir Adda í London sýna og sanna.
Úr VSV-teitinu lá leiðin í rútum í Höllina þar sem okkar fólk skemmti sér með öllum hinum á sjómannahátíðinni.
Kvöldið var ungt og nóttin enn yngri.