Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Kokkar Matey Ads Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

MATEY - sjávarréttahátíð hefst með opnunarhátíð í dag. Veitingastaðir, fiskframleiðendur og þjónustuaðilar í  sjávarsamfélaginu Vestmannaeyjum taka höndum saman, í þriðja skiptið og vekja athygli á menningararfleiðinni og því fjölbreytta fiskmeti sem framleitt er í Eyjum. Boðið verður uppá margvíslega töfrandi rétti úr frábæru hráefni héðan úr Eyjum. 

Hátíðin verður sett í Sagnheimum í dag, miðvikudag og stendur hún yfir fram á laugardag.

2024 09 03 326

Kokkarnir í fjörunni suður á eyju

Von á hópum erlendis frá

Frosti Gíslason ber hitann og þungann af skipulagningunni. Hann segir í samtali við vefsíðu Vinnslustöðvarinnar að það sé gaman að því hversu gott samstarf sé milli fiskframleiðenda hér í Vestmannaeyjum, veitingastaða og ferðaþjónustuaðila sem og annara samstarfsaðila.

Spurður um undirbúninginn segir Frosti að hann gangi mjög vel. „Við eigum von á hópum erlendis frá, blaðamenn frá stórum fjölmiðlum í Bretlandi eru væntanlegir og einnig frá stórum fjölmiðli á Spáni og að sjálfsögðu einnig frá Norðurey.”

Er hátíðin frábrugðin fyrri hátíðum á einhvern hátt?

Já, nú erum við eingöngu með konur sem eru gestakokkar og við erum ákaflega stolt af.

Þetta árið verða eingöngu konur í forystuhlutverki  á MATEY, en allir gestakokkarnir eru öflugir kvenleiðtogar í matreiðslu og koma víða að.

Adriana Solis Cavita kemur frá Mexíkó og verður á veitingastaðnum GOTT. Rosie May Maguire - kemur frá Bretlandi og verður á veitingastaðnum Slippnum og Renata Zalles sem er frá Bólivíu og verður á veitingastaðnum Einsa kalda.

Svo má líka nefna það við hlustum á gestina okkar á hverju ári og von er á ýmiskonar betrum bótum til þess að upplifun gesta verði sem allra best.

2024 09 03 298

Gestakokkarnir þrír

Gott samstarf við ýmsa aðila og fyrirtæki

Nú er töluvert samstarf milli veitingastaða og sjávarútvegsfyrirtækja í Eyjum í tengslum við hátíðina. Í hverju felst það?

Samstarfið felst í því að fiskvinnslurnar í Eyjum leggja til fiskinn á hátíðina og veitingastaðirnir sjá um útfærslurnar í samstarfi við gestakokkana.  Ferðaþjónustuaðilar og hjálpa til við markaðssetningu á þessum einstaka fiski sem framleiddur er hér og hjálpa til við að koma okkur enn betur á framfæri sem sjávarsamfélag.  

Við erum svo í samstarfi við Íslandsstofu og ferðaþjónustuaðila og  fleiri aðila til þess að koma fjölmiðlum hingað og hjálpa þeim að upplifa það sem besta sem Eyjan hefur uppá að bjóða í mat, drykk, gistingu, afþreyingu og skemmtun.

DSC 1401

Frosti Gíslason á opnun MATEY í fyrra

Gestir frá Bretlandi, Spáni, Portúgal og Ítalíu

Aðspurður um hvort von sé á gestum erlendis frá á hátíðina í ár svarar Frosti: „Já, í fyrra fengum við fólk m.a. sem kom sérstaklega frá Ítalíu til þess eins að sækja MATEY Seafood Festival, þetta árið eigum við von á fólki m.a. frá Bretlandi, Spáni, Portúgal og Ítalíu og eflaust fleiri stöðum sem ég veit ekki enn um.”

Sjáið þið sóknarfæri í framtíðinni?

Gríðarleg sóknarfæri eru framundan sem byggjast á því að við öll í þessu magnaða sjávarsamfélagi stöndum saman að byggja upp sjálfbært, öflugt og fjölbreytt mannlíf þar sem fyrirtæki í mismunandi greinum og íbúar standa saman að gera geggjaða hluti.

Þátttaka heimafólks lykilatriði

Er Frosti er inntur eftir svörum um hvernig salan gangi á hátíðina segir hann að hún gangi nokkuð vel. „Ég vil gjarnan hvetja heimafólk til þess að bóka borð og taka þátt í hátíðinni.  Kannski sérstaklega þau sem eru á leið á árgangsmót að fara saman út að borða á MATEY á fimmtudagskvöldið.  Því til þess að svona gangi upp er þátttaka heimafólks lykilatriði í að geta haldið hátíðina aftur og aftur og markaðssetja Vestmannaeyjar sem magnað sjávarsamfélag og einn helsta mataráfangasað Íslands.”

DSC 1370

Vestmannaeyingum og gestum er boðið á opnunarhátíð MATEY Seafood Festival sem haldin verður i Sagnheimum í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum í dag, miðvikudag kl:17:00.

Eyjar skáka London

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segir að Vinnslustöðin hvetji Eyjamenn og gesti þeirra til að fara út að borða af þessu frábæra tilefni. 

„Það er einfaldlega þannig að eigendur veitingahúsanna þurfa á gestum að halda til að rekstur þeirra gangi.  Það er okkur gríðarlega verðmætt að hafa öll þessi frábæru veitingahús -  sem eru hvert öðru betra - starfandi. Leggjum því okkar af mörkum til stuðnings við þá og fyllum veitingastaðina um helgina.” segir Binni og bætir við að það sé ekki sjálfgefið að hafa slíka flóru af frábærum veitingastöðum í ekki stærra samfélagi.

„Það er gaman að segja frá því að allir viðskiptavinir Vinnslustöðvarinnar sem koma í heimsókn dást að gæðum veitingastaðanna og úrvali sem þeir bjóða upp á.  Sumir hafa meira að segja sagt að það sé betra að fara út að borða í Eyjum en London!  Þeir fái einfaldlega betri mat hér.  Þetta eru gríðarleg verðmæti í samfélaginu sem við verðum að styðja við.”

Kokkar Matey Ads (1)

Kokkarnir á Slippnum, Einsa kalda og Gott ásamt gestakokkunum á MATEY í ár