Fara á efnissvæði
World Map Background Image
20231207 180533 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

„Þetta er fjórða síldarveislan á aðventu og sú fjölmennasta frá upphafi. Við höfum skapað skemmtilega hefð sem fellur vel í kramið hjá okkar fólki og öðrum sem mæta,“ segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar, í tilefni af afar vel heppnaðri síldarveislu VSV fimmtudaginn 7. desember.

 

„Við bjóðum öllum starfsmönnum í mat og svo mæta líka fyrrverandi starfsmenn og fleiri síldarvinir eftir atvikum. Heiðurinn af öllu saman eiga auðvitað Inga og Bennó skuldlaust [Ingigerður Helgadóttir og Benóný Þórisson].

 

Þau sjá um að verka jólasíld Vinnslustöðvarinnar, skiptast á síldarfötum við önnur uppsjávarfyrirtæki og skipuleggja  sjálfa síldarveisluna hér með öllu tilheyrandi; kartöflum, rúgbrauði, eggjum og drykkjarföngum. Veisluborðið er glæsilegt og matsalurinn skreyttur í samræmi við tilefnið.“

 

Aðalmálið í síldarveislunni var að sjálfsögðu að bragða á jólasíld VSV og hún þykir að sjálfsögðu bera af, með fullri virðingu fyrir keppinautum úr öðrum héruðum og fyrirtækjum. Tómatsíld Ingu deildi toppsætinu með VSV-síldinni.

 

Þarna var líka síld frá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum, Ísfélaginu á Þórshöfn, Eskju, Síldarvinnslunni, Skinney-Þinganesi og Loðnuvinnslunni.

 

Veislan er öðrum þræði gæðamat fyrir eigin framleiðslu og keppninautanna, það er að segja hvaða síld komi næst VSV-síldinni að gæðum, áferð, umbúðum og þar fram eftir götum. Sindri segir að skoðanir séu eðlilega skiptar um hvaða síld hljóti 2. og 3. sætið og afgreiðir málið á diplómatískan hátt líkt og fyrirmyndar sendifulltrúi í utanríkisþjónustunni:

 

„Öll var síldin afar góð, hvaðan sem hún kom. Uppskriftir eru mismunandi og sömuleiðis er mismunandi hvað sett er með bitunum í föturnar.

 

Þetta er einmitt það sem gerir veisluna spennandi og áhugaverða. Sumt svipað, annað ólíkt, allt bragðgott.“

 

·      Ljósmyndir: Eydís & Sindri.

20231207 180605
20231207 180627
20231207 180645
20231207 180720
20231207 180841
20231207 181134
20231207 181148
20231207 181203
20231207 183904
20231207 183926
20231207 184024
20231207 184216
369888550 680390097430994 2078771023569758837 N
370099431 683279740608343 1182881741889794866 N
370293218 3574364039444270 6124597530452684473 N
377121227 739700501308681 7844158943699578016 N
377151931 364602779386092 4287971032983038553 N
377220978 249159708172185 5176233741660437483 N
377278004 1269575330389333 2404594927883465940 N
386440988 6976453479104809 3147554931588739896 N
386858653 3720685318206108 5990094890387865567 N
386875228 592787262969370 1260201958425015189 N
387419562 366153192654812 6330128302672871490 N
387459567 1294942537822186 4009918887406532278 N
herring
387633717 1300353943992835 8984046813713101201 N