Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Screenshot 2024 01 22 At 14.33.09 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Fyrrverandi vélastjóra dreymdi í vikunni Gullborg með fullfermi af loðnu. Drauminn réði hann þannig: Loðna mun finnast 3.-8 mars og hún kemur að vestan. Nú er að sjá hvort draumur rætist!

Gullborg RE-38/VE-38 var þjóðþekkt aflaskip, upphaflega smíðað í Danmörku 1946.

Aflakóngurinn Binni í Gröf (Benóný Friðriksson (1904-1972)og Einar Sigurðsson útgerðarmaður keyptu Gullborg árið 1955. Binni var síðan með skipið á árunum 1955 til 1972. Sonur hans, Friðrik, sótti sjóinn með föður sínum og tók síðan við skipinu og var með það til ársins 2000.

Ási í Bæ söng um Binna í Gröf og sagði hann hafa fiskað 60.000 tonn úr sjó á Gullborginni.

Ætla má að Friðrik hafi fiskað svipað, þannig að Gullborgin hefur skilað í kringum 100.000 tonnum á land undir stjórn þeirra feðga. Þó eru þetta ekki nákvæmar tölur.

Faxaflóahafnir sf. eignuðust skipið 2008 og var það tekið upp í Daníelsslipp í Reykjavík þar sem það var teiknað inn í deiliskipulag svæðisins. Þar stendur nú þetta mikla happafley og hefur verið málað líkt og það leit áður út.

Screenshot 2024 01 22 At 14.32.53