Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Screenshot 2023 11 27 At 10.41.56 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Stjórnendur Vinnslustöðvarinnar hafa ákveðið að hætta að gera út Brynjólf VE-3 og leggja skipinu. Áhöfninni var tilkynnt þetta í gær og öllum skipverjum jafnframt sagt upp störfum.

Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri segir tvær meginástæður vera fyrir þessari niðurstöðu:

„Við höfum annars vegar lent í tíðum bilunum með Brynjólf undanfarna mánuði með tilheyrandi truflunum í útgerð og kostnaði. Það sér ekki fyrir enda á þeim vandræðum. Þess vegna getum við ekki treyst því að rekstur skipsins gangi eðlilega fyrir sig framvegis enda skipið orðið gamalt og slitið.

Hins vegar hefur svo kvótaskerðingin í karfa áhrif. Við höfum einfaldlega ekki nægar aflaheimildir í karfa fyrir þau þrjú togskip sem við gerum út.

Þetta er staðan og við henni þarf að bregðast. 

Við munum leitast við að útvega skipverjum á Brynjólfi pláss á öðrum skipum Vinnslustöðvarinnar eftir því sem unnt er.“

Img 9225 Vef