Breki VE í kínverskri þurrkví
9/02/18
Togararnir Breki VE og Páll Pálsson ÍS hafa verið teknir í þurrkví í skipasmíðastöðinni í Kína til að botnhreinsa þá og mála. Þetta er eitt af frágangsverkunum áður en skipin verða afhend eigendum sínum í aðdraganda siglingar til heimahafna á Íslandi.
Reynslusiglingum og veiðarfæraprófunum á miðun úti fyrir Kínaströndum lauk á nýliðnu ári og nú fer að nálgast að togararnir verði „útskrifaðir“, sem ætti að gerast fyrr en síðar.
Myndir: Finnur Kristinsson
Nú er brostinn á umtalsverður vetur með tilheyrandi snjókomu í kínversku borginni Rongcheng þar sem skipasmíðastöðin er.
Slíkt kallar á snjóruðning og þá ekki endilega með stórvirkum vinnuvélum.